Velkominn á heimasíðuna mína : )
Ég heiti Steinunn Erla !!
Steinunn Erla fæddist á fæðingadeild landspítalans þann 11 febrúar 2002 og þá voru foreldrar mínir búnir að bíða í Reykjavik síðan 20 janúar og voru orðin frekar pirruð að bíða svona lengi ég átti nefnilega að fæðast 27 janúar.
Mamma heitir Sigurrós Erla og hún vinnur á Krakkakoti þar sem hún eldar matinn handa krökkunum og pabbi minn er sjóari á Jónu Eðvalds SF 200.
Stóri bróðir minn heitir Jón Birnir kallaður Jobbi en ég kalla hann stundum Sykurpúða hann er fæddur 22 apríl 1986,hann á kærustu sem heitir Lena Hrönn.Svo kemur Ívar Þór hann er fæddur 9 október 1990 en hann var mikið veikur og dó þegar hann var 6 ára,næst er svo systir mín hún Þóra Birna hún er fædd 9 maí 1995 ég er svo síðust í röðinni og get með góðu móti fengið alla á heimilinu til að snúast í kringum mig!
Núna er ég í Hafnarskóla í bekk 2.S og það er rosa gaman og umsjónarkennarinn minn heitir Sigga..
Áður en þið farið vil ég endilega að þið skrifið í gestabókina ;)